Fréttir
Glærur frá málþingi um mat á umhverfisáhrifum 24. apríl s.l.
Skipulagsstofnun stóð fyrir málþingi um mat á umhverfisáhrifum 24. apríl s.l. Alls sóttu um 90 manns málþingið, átta erindi voru haldin og tóku þátttakendur virkan þátt í umræðum. Gerður var góður rómur að erindunum og ýmislegt áhugavert kom fram í umræðuhópunum. Skipulagsstofnun þakkar öllum þeim sem sóttu málþingið kærlega fyrir þátttöku sína og vinnur að samantekt úr því sem fram kom á málþinginu.
Glærur málþingsins eru aðgengilegar hér að neðan:
Hlutverk almenings í mati á umhverfisáhrifum - Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar
Sjónarhorn framkvæmdaraðila - Árni Jón Elíasson, sérfræðingur Lansnet
Gagnanotkun og aðferðir við mata á umhverfisáhrifum. Erum við á réttri leið? - Ólafur Árnason, sviðsstjóri, Efla verkfræðistofa
Framsetning og form frummatsskýrslu og matsskýrslu - Auður Andrésdóttir, sviðsstjóri, Mannvit verkfræðistofa
Óvissa í mati á umhverfisáhrifum jarðvarmavirkjana - Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Hvað er að vera umsagnaraðili um mat á umhverfisáhrifum? Sýn og reynsla Umhverfisstofnunar - Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, deildarstjóri sviðs náttúruauðlinda, Umhverfisstofnun
Hvað er að marka spár og mótvægisaðgerðir í mati á umhverfisáhrifum? Sannprófun umhverfisáhrifa og efnda við Sultartangalínu. (Rannsókn Stofnunar Sæmundar fróða fyrir Landsnet) - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisfræðingur
Gjábakkavegur. Eftirfylgni og aðlögun framkvæmda við Lyngdalsheiðarveg að loknu mati á umhverfisáhrifum (Rannsókn VSÓ Ráðgjöf fyrir Vegagerðina) - Björn H. Barkarson, sérfræðingur VSÓ Ráðgjöf
