Svæðisskipulag
Úrdráttur úr SSK höfuðborgarsvæðisins
  • Skipulagsáætlun tveggja eða fleiri sveitarfélaga þar sem sett er fram sameiginleg stefna þeirra um byggðaþróun og sameiginlega hagsmuni
  • Skal taka til svæðis sem myndar heild í landfræðilegu, hagrænu og félagslegu tilliti
  • Sameiginleg stefna hlutaaðeigandi sveitarstjórna til a.m.k. tólf ára tímabils. Við gerð svæðisskipulags skal byggt á markmiðum skipulagslaga og landsskipulagsstefnu
  • Svæðisskipulag skal vera í gildi fyrir sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins

 

Svæðisskipulag getur tekið til alls lands hlutaðeigandi sveitarfélaga eða til tiltekinna þátta sem varðar sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og mikilvægt þykir að marka sameiginlega stefnu um, s.s. þjónustukerfi og umhverfismál.

Hlutaðeigandi sveitarstjórnir koma á fót svæðisskipulagsnefnd. Svæðisskipulagsnefnd annast vinnslu, kynningu og afgreiðslu svæðisskipulags undir yfirstjórn hlutaðeigandi sveitarstjórna.

Í upphafi skipulagsvinnunnar tekur svæðisskipulagsnefnd saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram koma helstu áherslur nefndarinnar við gerð skipulagsins og upplýsingar um skipulagsforsendur, fyrirhugað skipulagsferli, kynningu og samráð. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna almenningi.

Svæðisskipulag skal ávallt vera í gildi fyrir sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður við svæðisskipulagsgerð greiðist til helminga af Skipulagssjóði og hlutaðeigandi sveitarfélögum samkvæmt samningi Skipulagsstofnunar og svæðisskipulagsnefndar.

Að afloknum hverjum sveitarstjórnarkosningum skal svæðisskipulagsnefnd meta hvort ástæða sé til að endurskoða svæðisskipulagið. Skal sú ákvörðun taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun svæðisskipulagsins. Nýtt og endurskoðað svæðisskipulag er háð staðfestingu Skipulagsstofnunar eða umhverfisráðherra þegar það á við.

Skipulagslög nr. 123/2010
Skipulagsreglugerð - Með fyrirvara um að vísað er til eldri skipulagslaga (nr.73/1997)
Lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006









Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica