Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að bygging ökugerðis á MotoPark-svæðinu í Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að vegir að Héðinsfjarðarvatni skuli ekki háðir mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á legu Búðarhálslínu 1, Ásahreppi og Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.
Lesa meiraLandsnet mun hafa opið hús fimmtudaginn 5. ágúst milli kl 16:00 og 20:00 í Ráðhúskaffi, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn. Kynning á verkefninu verður kl. 17:00. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Landsnets,www.landsnet.is og á vef Eflu verkfræðistofu, www.efla.is. Hægt er að gera athugasemdir við frummatsskýrslu til og með 27. ágúst 2010. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast Skipulagsstofnun eigi síðar en 27. ágúst 2010.
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar samkvæmt lögum nr. 106/2000. Skipulagsstofnun telur að fyrirhuguð stækkun efnistökusvæðisins komi til með að hafa nokkur neikvæð sjónræn áhrif þar sem náman mun verða sýnilegri frá fleiri sjónarhornum. Hins vegar er um tiltölulega umfangslitla stækkun að ræða miðað við stærð núverandi námu og efnistökusvæðið er ekki á svæði sem nýtur verndar m.a. með tilliti til fjölbreytileika landslags. Skipulagsstofnun telur að draga megi úr neikvæðum sjónrænum áhrifum með því að koma í veg fyrir að námusvæðið verði opnað að Miðsandsárgili. Þá telur stofnunin að áhrif framkvæmdanna muni verða nokkuð neikvæð fyrir þá sem stunda útivist í nágrenni efnistökusvæðisins vegna ónæðis af völdum hávaða við vinnslu og efnisflutninga og að einhverju leyti vegna sprenginga.
Verið er að vinna efni í námunni úr allsérstæðri og fágætri jarðmyndun á landsvísu en fyrir liggur að vinnslan mun raska litlum hluta myndunarinnar á svæðinu þannig að stærstur hluti hennar verður áfram óhreyfður. Neikvæð áhrif eru þó óhjákvæmilega nokkur vegna sérstöðu jarðmyndunarinnar.
Lesa meiraSkipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning nýs vegar að efnistökusvæði í Húsaborg, Vestur-Húnaþingi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Lesa meira