Fréttir


20.7.2023

Norðausturvegur (85) um Brekknaheiði í Langanesbyggð

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð lagning Norðausturvegar (85) um Brekknaheiði í Langanesbyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. 

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér , ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og svörum framkvæmdaraðila. 

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 25. ágúst 2023.