Fréttir


  • Selhofdar

27.2.2024

Þjónustumiðstöð, gisting og tjaldsvæði að Selhöfðum í Þjórsárdal

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging þjónustumiðstöðvar, gistihýsa og tjaldsvæðis að Selhöfðum í Þjórsárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér  ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og viðbrögðum framkvæmdaraðila.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. mars 2024.