Fréttir


27.9.2018

Staðfesting á breytingu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Stóralág-Myllulækur

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. september 2018, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. júlí 2018.

Í breytingunni felst að heimila tjaldsvæði á hluta frístundabyggðar F9, Myllulækur í landi Stórulágar.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.