Fréttir


  • Örlygshafnarvegur

7.1.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna Örlygshafnarvegar

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. janúar 2021, breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. nóvember 2020.

Í breytingunni felst breytt lega Örlygshafnarvegar suður fyrir Hvallátur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.