Fréttir


11.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna skipulagsákvæði um landbúnaðarsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti 11. september 2023. óverulega breytingu á Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. janúar 2023.

Í breytingunni felst leiðrétting á ákvæðum um landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.