Fréttir


25.1.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Leiðarhöfða á Höfn

Skipulagsstofnun staðfesti 25. janúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2023.

Í breytingunni felst stækkun á óskilgreindu opnu svæði sem verður skilgreint sem nýtt opið svæði (OP5). Íbúðarbyggðin Höfði (ÍB4) minnkar til samræmis og fráveita (I4) færist til.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.