Fréttir


9.5.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna íbúðarbyggðar í landi Sólbergs

Skipulagsstofnun staðfesti 9. maí 2023 breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. ágúst 2022.

Í breytingunni felst að skilgreind er um 2,3 ha íbúðarbyggð ÍB26 í landi Sólbergs og þar verður heimilt að byggja fjögur íbúðarhús. Landbúnaðarsvæði minnkar sem breytingunni nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.