Fréttir


  • Gisting í íbúðarbyggð, Stykkishólmi

17.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar vegna gistingar í íbúðarbyggð

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar 2002-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. janúar 2022.

Í breytingunni felst stefna og skilmálar um gististaði í íbúðarbyggð í Stykkishólmi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.