Fréttir


9.1.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skorradalshrepps vegna frístundabyggðar í landi Indriðastaða

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. janúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að 5 ha opnu svæði til sérstakra nota og 2 ha svæði fyrir verslun og þjónustu er breytt í 7 ha frístundabyggð, svæði D.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.