Fréttir


  • Landnotkun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

27.6.2016

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Hraunvalla

Skipulagsstofnun staðfesti þann 2. júní 2016 breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. maí 2016.

Breytingin tekur til 1,6 ha landbúnaðarsvæðis í landi Hraunvalla sem breytist  í verslunar- og þjónustusvæði V12. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar