Fréttir


30.1.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Brjánsstaða, verslun og þjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti, 30. janúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. nóvember 2023.

Í breytingunni felst að skilgreint verður 1 ha svæði fyrir verslun og þjónustu á landbúnaðarlandi sem minnkar samsvarandi. Gert er ráð fyrir fastri búsetu, ferðaþjónustu og gistingu fyrir allt að 50 gesti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda