Fréttir


22.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Þjóðólfshaga 1, íbúðarbyggð

Skipulagsstofnun staðfesti 22. febrúar 2024 breytingu á á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. janúar 2024.

Í breytingunni felst að 30 ha frístundabyggð (F11) og 8 ha landbúnaðarsvæði í landi Þjóðólfshaga 1 er breytt í íbúðarbyggð (ÍB31) með allt að 35 lóðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.