Fréttir


23.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna íþróttasvæðis á Hellu

Skipulagsstofnun staðfesti, 23. nóvember 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. nóvember 2022.

Í breytingunni felst að hluta af almenningsgarði (OP2) verður breytt í 8,7 ha íþróttasvæði (ÍÞ7). OP2 minnkar úr um 13 ha í 5 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.