Fréttir


12.6.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Hellishóla

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. júní 2019, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. maí 2015.

Í breytingunni felst að 7,3 ha svæði fyrir frístundabyggð (F-352) að Hellishólum í Fljótshlíð er breytt í íbúðarbyggð (ÍB-352) fyrir 13 íbúðarhúsalóðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.