Fréttir


3.8.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna stækkunar landbúnaðarsvæðis við Dalland

Skipulagsstofnun staðfesti 2. ágúst 2022 breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. júní 2022.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði 527-L að Dallandi stækkar til austurs, úr 16,6 í 22,7 ha, og óbyggt svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.