Fréttir


23.1.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna Vatnsendahvarfs á Vatnsendahæð

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. janúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. nóvember 2023.

Í breytingunni felst niðurfelling verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ-20) og svæði fyrir samfélagsþjónustu (S-27) stækkar úr 0,41 ha í 1,7 ha og (S-67) minnkar úr 1,8 ha í 1,3 ha ásamt breytingu á afmörkun svæðis fyrir íbúðarbyggð (ÍB-6) og opins svæðis (OP-5.13) á Vatnsendahæð. Kambavegur og vesturhluti Vatnsendahvarfs falla niður sem tengibrautir og verða safngötur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.