Fréttir


20.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Kjósarhrepps vegna íbúðabyggðar í landi Möðruvalla 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. október 2022, breytingu á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 sem samþykkt var í hreppsnefnd 6. september 2022.

Í breytingunni felst að hluta frístundabyggðar F15c er breytt í íbúðarbyggð. Á því svæði eru þrjár lóðir, Brekkur 1, 2 og 8.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.