Fréttir


7.4.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna stækkunar á miðsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti þann 16. mars 2017 breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. febrúar 2017.

Breytingin felst í því að miðsvæði M4 verður stækkað en hafnarsvæði minnkað sem því nemur. Landnotkun verður breytt á hluta þriggja lóða við Sindragötu.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Auglýsing um staðfestinguna mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda innan tíðar og með því öðlast gildi.

Í kjölfarið verður hægt að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.