Fréttir


15.1.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna breyttrar landnotkunar á Hvammstanga

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. janúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. ágúst 2023.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar ÍB-1, ÍB-6 og ÍB-7 en á móti minnkar athafnasvæði, iðnaðarsvæði og opið svæði. Þá fellur frístundabyggð F-1 út úr skipulagi en í staðinn er ný verslun og þjónusta VÞ-10 skilgreind.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.