Fréttir


12.12.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna íbúðarbyggða á Flúðum

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. desember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. september 2019.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði innan þéttbýlisins á Flúðum er breytt í íbúðarbyggð á þremur stöðum þ.e. ÍB9 Garðastígur, ÍB10 Sandskarð, ÍB11 Hrafnkelsstaðir 2, á samtals 3 ha lands.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.