Fréttir


29.4.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar vegna stækkunar iðnaðarsvæðis I4

Skipulagsstofnun staðfesti 26. apríl 2024 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. mars 2024.

Í breytingunni felst stækkun á iðnaðarsvæði I4 um 1,2 ha yfir óbyggt svæði sem minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.