Fréttir


8.11.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna ákvæða um Suðurgötu 44

Skipulagsstofnun staðfesti 8. nóvember 2023 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 27. september 2023.

Í breytingunni felst að ákvæði um að haldið skuli í yfirbragð núverandi húss við Suðurgötu 44 er fellt út.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.