Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsness- og Grafningshrepps, Snæfoksstaðir
Skipulagsstofnun staðfesti þann 8. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Grímsness- og Grafningshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. nóvember 2017.
Í breytingunni felst að 3 ha af frístundabyggðinni F20b í landi Snæfoksstaða er breytt í landbúnaðarsvæði. Um er að ræða lóð nr. 100 í Rauðhólahverfi sem verður íbúðarlóð.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.