Fréttir


6.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes-og Grafningshrepps vegna VÞ15 á Borg í Grímsnesi

Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. nóvember 2023.

Í breytingunni felst heimild til fastrar búsetu á verslunar- og þjónustusvæði VÞ15 á Borg.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.