Fréttir


13.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna skipulagsákvæða fyrir landbúnaðarsvæði varðandi íbúðarhúsalóðir

Skipulagsstofnun staðfesti 12. september 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. apríl 2023.

Í breytingunni felst að íbúðarlóðir skuli að jafnaði vera 1 ha að stærð í stað minnst 1 ha.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.