Fréttir


25.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna landbúnaðarsvæðis á lóð 16, Stóru-Borg

Skipulagsstofnun staðfesti 21. september 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. mars 2023.

Í breytingunni felst að um 25 ha landbúnaðarsvæði L2 á lóð 16 í landi Stóru-Borgar er skilgreint sem landbúnaðarsvæði L3.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.