Fréttir


11.9.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Íþróttasvæðis á Flæðum á Sauðárkróki

Skipulagsstofnun staðfesti 7. september 2023, breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í byggðarráði 31. júlí 2023.

Í breytingunni felst að leyfilegt byggingarmagn á íþróttasvæðinu á Flæðum (ÍÞ-404) er aukið úr 10.500 m2 í 25.500 m2

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.