Fréttir


13.3.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Blönduósbæjar vegna stækkunar leikskólalóðar

Skipulagsstofnun staðfesti 13. mars 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. september 2023.

Í breytingunni felst stækkun leikskólalóðar, S1, á Blönduósi úr 0,6 ha í 1,6 ha. Við það minnkar íbúðarbyggð A úr 2,2 ha í 1,9 ha og óbyggt svæði um u.þ.b. hálfan hektara. Afmörkun íbúðarbyggðar er aðlöguð að landnotkunarreit S1.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.