Fréttir


4.10.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna verslunar og þjónustu að Lækjarholti 1

Skipulagsstofnun staðfesti 4. október 2023 breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. júní 2023.

Í breytingunni felst að skilgreint er um 3,6 ha svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ24) í landi Lækjarholts 1 vegna áforma um uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.