Fréttir


13.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna íbúðarbyggðar (ÍB20) í landi Krækishóla

Skipulagsstofnun staðfesti 13. febrúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. desember 2023.

Í breytingunni felst 10 ha frístundabyggð F25 í landi Krækishóla breytist í íbúðarbyggð ÍB21.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.