Fréttir


  • Hluti úr aðalskipulagsuppdrætti Flóahrepps

25.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps, Ósbakki

Skipulagsstofnun staðfesti, 25. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. júní 2020.

Í breytingunni felst að 2 ha frístundabyggð, F36 í landi Ósbakka, er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.