Fréttir


11.2.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna breyttar legu Kröflulínu 3

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. febrúar 2019, breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. desember 2018.

Í breytingunni felst að legu Kröflulínu 3 er breytt á 10 km kafla á línuleiðinni sem nær frá vestari mörkum sveitarfélagins í Jökulsá á Fjöllum að mörkum Fljótsdalshrepps á Klausturselsheiði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.