Fréttir


5.7.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 vegna smáhýsabyggðar í Skarðsdal, Siglufirði

Skipulagsstofnun staðfesti 3. júlí 2023, breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. maí 2023.

Í breytingunni felst nýr landnotkunarreitur fyrir verslun- og þjónustu (329 VÞ) í Skarðsdal á Siglufirði þar sem gert er ráð fyrir 10 gistihúsum fyrir allt að 40 gesti og þjónustuhúsi. Samtals um 530 m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.