Fréttir


29.4.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna stækkunar verslunar og þjónustusvæðis að Ytri-Varðgjá

Skipulagsstofnun staðfesti 29. apríl 2024 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. apríl 2024.

Í breytingunni felst að svæði VÞ22 fyrir verslun og þjónustu að Ytri-Varðgjá er stækkað um tæplega 2 ha vegna áforma um byggingu allt að 120 herbergja hótels í tengslum við Skógarböðin.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.