Fréttir


18.8.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Ölduhverfis, íbúðabyggðar í landi Kropps

Skipulagsstofnun staðfesti 17. ágúst 2023, breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. júní 2023.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða um 113 íbúðir í íbúðarbyggð (ÍB8) í Ölduhverfi innan Hrafnagilshverfis, úr 100 íbúðum í 213 íbúðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.