Fréttir


22.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna íbúðarbyggðar í landi Espihóls, við Espilaut

Skipulagsstofnun staðfesti 22. febrúar 2024 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. desember 2023.

Í breytingunni felst breyting á landnotkun á 1,5 ha lands, úr landbúnaðarsvæði í íbúðarbyggð (ÍB33) fyrir eitt íbúðarhús.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.