Fréttir


3.4.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna efnistöku við Stóra-Hamar 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. apríl 2024, breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. janúar 2024.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um nýtt efnistökusvæði, E36, við Stóra-Hamar 1. Hámarkvinnslumagn er 30.000m3 á 1,7 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.