Fréttir


  • Birkiflöt

29.1.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna Birkiflatar í Skíðadal

Skipulagsstofnun staðfesti 22. janúar 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir frístundabyggð að Birkiflöt í Skíðadal stækkar úr 5,1 ha í 6,8 ha fyrir 8 frístundahús.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.