Fréttir


5.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna skólphreinsistöðvar í Búðardal

Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2024, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 17. ágúst 2023.

Í breytingunni felst stækkun iðnaðarsvæðis I-6 úr 0,1 ha í 0,14 ha að stærð og minnkar svæði OP-2 sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.