Fréttir


21.7.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna verslunar og þjónustu í Úthlíð 2

Skipulagsstofnun staðfesti 20. júlí 2022 breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 28. apríl 2022.

Í breytingunni felst að lóðum 5, 7 og 9 við Vörðuás, innan frístundabyggðar F78, er breytt í verslunar- og þjónustusvæði VÞ47.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.