Fréttir


22.2.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna stækkunar efnistökusvæðis fyrir Lönguhlíðarnámu í landi Eyvindartungu

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. febrúar 2024, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. desember 2023.

Í breytingunni felst stækkun efnistökusvæðis E19, Lönguhlíðarnámu í landi Eyvindartungu, úr 2 ha í 4,95 ha. Heimild til efnistöku fer úr 50.000 m3 í allt að 149.500 m3.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.