Fréttir


  • Vatnsleysa

31.1.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 24. janúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að 2 ha af frístundabyggð F67 breytist í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.