Fréttir


  • Norðurvegur, Hrísey

10.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna Norðurvegar 6-8, Hrísey

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. september 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. júní 2020.

Í breytingunni felst að lóðin Norðurvegur 6-8 verður hluti af íbúðarbyggð (ÍB25) í stað þess að vera skilgreind sem samfélagsþjónusta (S40).

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.