Fréttir


4.12.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna Dalvíkurlínu 2

Skipulagsstofnun staðfesti 4. desember 2023 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. september 2023.

Í breytingunni felst lagning 66 kV jarðstrengs Dalvíkurlínu 2 á um 2 km kafla innan bæjarmarka.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.