Fréttir


  • Miðhúsabraut, Akureyri

25.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna athafnasvæðis við Miðhúsaveg

Skipulagsstofnun staðfesti 24. febrúar 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. janúar 2022.

Í breytingunni felst 0,2 ha stækkun athafnasvæðis (AT13) við Miðhúsavega á Akureyri en skógræktar- og landgræðslusvæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.