Fréttir


17.8.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna skógræktar- og landgræðslusvæðis SL7, græna trefilsins

Skipulagsstofnun staðfesti 17. ágúst 2023 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. júní 2023.

Í breytingunni felst að skógræktar- og landgræðslusvæði SL7, græni trefillinn, stækkar um 8 ha sunnan við ÍB23, ofan byggðar á Akureyri. Óbyggt svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.