Fréttir


14.12.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna samfélagsþjónustu S2

Skipulagsstofnun staðfesti 14. desember 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. september 2023.

Í breytingunni felst að samfélagsþjónusta S2, lóð fyrir slökkvistöð við Akureyrarflugvöll, er felld út.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.